Skilmálar – Jólaálfurinn.is
Síðast uppfært: september 2026
Velkomin á Jólaálfurinn.is. Eftirfarandi skilmálar gilda um kaup á vörum í vefverslun Jólaálfsins. Með því að leggja inn pöntun samþykkir kaupandi þessa skilmála.
1. Seljandi
Vefverslunin Jólaálfurinn.is
Jólaálfurinn ehf.
Kennitala: 660924-0510
Netfang: jolaalfurinn@jolaalfurinn.is
2. Verð
Öll verð á Jólaálfurinn.is eru gefin upp í íslenskum krónum og innihalda 24% virðisaukaskatt
Sendingarkostnaður bætist við verð pöntunar nema annað sé sérstaklega tekið fram. Heildarverð, ásamt sendingarkostnaði og öðrum gjöldum, kemur fram áður en gengið er frá kaupum.
Við áskiljum okkur rétt til að leiðrétta augljósar innsláttar-, verð- eða kerfisvillur. Ef slík villa hefur áhrif á pöntun sem þegar hefur verið lögð inn verður kaupanda tilkynnt um það eins fljótt og auðið er og honum gefinn kostur á að halda pöntuninni áfram á réttu verði eða hætta við hana.
3. Pöntun og greiðsla
Pöntun telst móttekin þegar kaupandi fær rafræna pöntunarstaðfestingu.
Greiðslumátar sem í boði eru hverju sinni birtast í greiðsluferli vefverslunarinnar. Greiðsluupplýsingar eru meðhöndlaðar í gegnum viðurkennda greiðsluþjónustu og Jólaálfurinn geymir ekki kortaupplýsingar kaupanda nema slíkt sé sérstaklega tekið fram.
Kaupandi ber ábyrgð á því að upplýsingar sem gefnar eru upp við pöntun, svo sem nafn, heimilisfang, símanúmer og netfang, séu réttar.
4. Afhending og sendingar
Áætlaður afhendingartími kemur fram á vefsíðunni eða í upplýsingum um viðkomandi vöru.
Sendingartími getur verið mismunandi eftir afhendingarmáta, álagi og árstíma. Jólaálfurinn ber ekki ábyrgð á töfum sem rekja má til atvika sem fyrirtækið hefur ekki stjórn á, en mun eftir fremsta megni upplýsa viðskiptavini um verulegar tafir.
5. Forsala
Þegar vara er keypt í forsölu er sérstaklega tekið fram að varan sé ekki tilbúin til tafarlausrar afhendingar.
Áætlaður afhendingartími forsöluvöru kemur fram í vörulýsingu eða við kaup. Dagsetningar eru áætlaðar og geta breyst, meðal annars vegna framleiðslu, flutninga eða annarra aðstæðna utan stjórnunar Jólaálfsins.
Ef veruleg breyting verður á áætluðum afhendingartíma verður kaupanda tilkynnt um það. Lögbundinn réttur neytanda vegna tafa eða vanefnda helst óskertur.
6. 14 daga réttur til að falla frá kaupum
Við kaup í vefverslun hefur neytandi almennt 14 daga rétt til að falla frá kaupum án þess að tilgreina ástæðu.
Fresturinn byrjar almennt þegar kaupandi eða aðili sem hann tilnefnir hefur tekið vöruna í sína vörslu. Þetta þýðir meðal annars að þegar um forsölu er að ræða byrjar 14 daga fresturinn almennt við móttöku vörunnar en ekki þegar hún er pöntuð.
Vilji kaupandi nýta rétt sinn skal hann senda skýra tilkynningu til Jólaálfsins innan 14 daga frá móttöku vörunnar á jolaalfurinn hjá jolaalfurinn.is
Vörunni skal síðan skila án ástæðulausrar tafar og eigi síðar en 14 dögum eftir að tilkynning um að fallið sé frá kaupum var send.
Kaupandi ber almennt beinan kostnað við að skila vöru þegar hann nýtir lögbundinn rétt til að falla frá kaupum, nema annað hafi verið ákveðið.
Kaupandi má skoða vöru með sama hætti og eðlilegt væri í verslun. Ef vara hefur verið notuð eða meðhöndluð umfram það sem nauðsynlegt er til að kanna eðli, eiginleika og virkni hennar getur kaupandi borið ábyrgð á þeirri verðrýrnun sem af því leiðir.
Við lögmæta afturköllun eru greiðslur endurgreiddar samkvæmt ákvæðum laga, að meðtöldum kostnaði við ódýrasta almenna afhendingarmáta sem boðið var upp á, eftir því sem við á.
7. Undantekningar frá skilarétti
Lögbundinn réttur til að falla frá kaupum getur verið takmarkaður í þeim tilvikum sem lög heimila, meðal annars þegar vara hefur verið sérstaklega framleidd eða sérsniðin samkvæmt óskum kaupanda eða þegar innsigli á tilteknum hreinlætisvörum hefur verið rofið.
Slíkar undantekningar verða sérstaklega tilgreindar við viðkomandi vöru þegar þær eiga við.
8. Gölluð, röng eða skemmd vara
Ef vara reynist gölluð, röng vara hefur verið afhent eða vara skemmist við afhendingu skal kaupandi hafa samband við Jólaálfinn eins fljótt og auðið er á jolaalfurinn hjá jolaalfurinn.is
Gott er að láta pöntunarnúmer, lýsingu á vandamálinu og ljósmyndir fylgja með þegar við á.
Réttur neytenda vegna galla fer samkvæmt lögum um neytendakaup nr. 48/2003. Neytandi getur meðal annars átt rétt á úrbótum, nýrri afhendingu, afslætti eða eftir atvikum riftun kaupanna. Almennt er hægt að bera fyrir sig galla í allt að tvö ár frá móttöku vöru, með þeim undantekningum sem lögin kveða á um.
9. Öryggi barnavara og CE-merkingar
Öryggi barna er okkur mikilvægt.
Allar leikfangavörur sem Jólaálfurinn selur og falla undir reglur um öryggi leikfanga eru CE-merktar og uppfylla þær viðeigandi öryggiskröfur sem gerðar eru til slíkra vara á Evrópska efnahagssvæðinu.
CE-merkið gefur til kynna að framleiðandi hafi lýst því yfir að leikfangið uppfylli viðeigandi kröfur um öryggi og samræmi. Leikföng sem boðin eru á markaði á Íslandi skulu vera CE-merkt.
Viðskiptavinir eru hvattir til að fylgja ávallt aldursmerkingum, viðvörunum og notkunarleiðbeiningum sem fylgja vörum.
Sumar vörur geta innihaldið smáa hluti og eru því ekki ætlaðar börnum yngri en þriggja ára. Þar sem slíkt á við er það tekið fram á vöru, umbúðum eða í meðfylgjandi upplýsingum.
Foreldrar og forráðamenn bera ábyrgð á að velja vörur sem hæfa aldri, getu og þroska barns og að hafa viðeigandi eftirlit með notkun þeirra. Neytendastofa leggur sérstaklega áherslu á að fylgja aldurs- og öryggismerkingum leikfanga.
10. Vörumyndir og vörulýsingar
Við leggjum okkur fram um að birta eins réttar upplýsingar og mögulegt er um vörur okkar.
Litir geta þó birst örlítið mismunandi eftir skjám og tæki kaupanda. Minniháttar breytingar geta einnig orðið á umbúðum eða útliti vöru milli framleiðslulota, án þess að það hafi áhrif á meginvirkni eða gæði vörunnar.
Ef um verulega breytingu á vöru er að ræða verður það tekið fram eftir því sem unnt er.
11. Uppseldar vörur og lagerstaða
Öll sala er háð lagerstöðu.
Ef vara reynist ekki fáanleg eftir að pöntun hefur verið lögð inn mun Jólaálfurinn hafa samband við kaupanda eins fljótt og mögulegt er. Kaupanda verður eftir atvikum boðin sambærileg vara, bið eftir afhendingu eða full endurgreiðsla vegna vörunnar.
12. Kvartanir
Við viljum alltaf fá tækifæri til að leysa úr málum með viðskiptavinum okkar.
Kvartanir og fyrirspurnir vegna kaupa skulu sendar á jolaalfurinn hja jolaalfuirnn.is
Takist ekki að leysa ágreining milli kaupanda og Jólaálfsins getur neytandi eftir atvikum leitað til Kærunefndar vöru- og þjónustukaupa, sem er sjálfstæð opinber nefnd sem úrskurðar í ágreiningsmálum milli neytenda og seljenda.
13. Persónuvernd
Jólaálfurinn meðhöndlar persónuupplýsingar viðskiptavina í samræmi við gildandi persónuverndarlöggjöf.
Nánari upplýsingar um söfnun, vinnslu, varðveislu og réttindi einstaklinga skulu koma fram í Persónuverndarstefnu Jólaálfsins.
14. Hugverkaréttur
Allt efni á Jólaálfurinn.is, þar á meðal textar, ljósmyndir, myndskreytingar, vörumerki, hönnun og annað efni sem Jólaálfurinn á rétt á, er verndað samkvæmt viðeigandi hugverkaréttarlögum.
Óheimilt er að afrita, birta, dreifa eða nota slíkt efni í atvinnuskyni án skriflegs samþykkis rétthafa.
15. Lög og varnarþing
Um viðskipti á Jólaálfurinn.is gilda íslensk lög.
Komi upp ágreiningur sem ekki tekst að leysa með samkomulagi fer um úrlausn hans samkvæmt íslenskum lögum og reglum um lögsögu og varnarþing neytendamála.
