Samstarfsaðilar og góðgerðarmál

Hver einasta gjöf er vandlega úthugsuð – og hluti af ágóðanum fer til góðra málefna.

Við höldum áfram að láta gott af okkur leiða og metnaðurinn hefur sjaldan verið meiri, en hver einasta gjöf er vandlega úthugsuð. Hefðin fyrir því að gefa til baka er okkur afar kær. Í fyrra áttum við yndislegt samstarf við Bergið headspace og 2024 studdum við mikilvægt starf UNICEF.

Í ár ákváðum við að fara í samstarf við Bryndísarhlíð og gefum út nýtt endurskinsmerki með þeim. Við erum innilega þakklát og stolt af því að fá að leggja okkar af mörkum til þeirra mikilvæga starfs.

Bryndísarhlíð verður sérhæfð áfalla- og ofbeldismóttaka á Landspítala – öruggur staður þar sem börn og ungmenni geta leitað sér aðstoðar. Hún opnar í febrúar 2027 og allur ágóðinn af sölu af endurskinsmerkjunum okkar fer til mótttökunnar.

Einnig er það okkur sönn ánægja að segja frá því að við höfum skrifað og gefum út glænýja barnabók í samstarfi við Sterkari út í lífið. Bókin er full af uppbyggilegum og mikilvægum skilaboðum fyrir börnin okkar.

Takk fyrir að vera með okkur í liði og hjálpa okkur að styðja við þessi frábæru málefni ár eftir ár!

Jólaálfurinn og góðgerðarmál

  • Bryndísarhlíð 2026Í ár gefum við út nýtt endurskinsmerki til styrktar opnun á nýrri áfalla- og ofbeldismóttöku Landspítala.
  • Sterkari út í lífið 2026 og 2025Barnabækurnar Skýin í maganum og Ljónið á sléttunni eru skrifaðar í samstarfi við þau.
  • Bergið headspace 2025Í fyrra studdum við Bergið og ókeypis ráðgjöf fyrir ungmenni.
  • UNICEF 2024 UNICEF er leiðandi í hjálparstarfi fyrir börn í heiminum. Þau berjast fyrir réttindum allra barna og sinna bæði langtímauppbyggingu og neyðaraðstoð.

Takk fyrir að vera með okkur í liði

Með hverjum pakka hjálpar þú okkur að styðja við þessi málefni ár eftir ár.

Shopping Cart
Scroll to Top