- Ein pöntunEngin hlaup á bensínstöð í desember.
- Vandlega valiðNytsamlegt, ókynjað og við hæfi aldursins.
- KassinnMerktur „Bókhald” svo forvitnir láti hann vera.
Hvað er í pakkanum?
Hver gjöf er valin með unglinga í huga — spil, þrautir, bækur og nytsamlegir hlutir. *Hámark 5 pakkar á hvern viðskiptavin.
3 myndir
01
Pinnaspil
Klassískt og spennandi leikfang í skemmtilegum nýjum búningi! Leikurinn gengur út á að koma litríku viðarpinnunum fyrir inni í tréhringnum þannig að þeir standi uppréttir í hnapp. Leikmenn skiptast síðan á að draga einn pinna varlega út í einu - en passaðu þig, sá sem fær hrúguna til að hrynja tapar!
Spilið kemur í lítilli, sterkbyggðri málmdós, það tekur afar lítið pláss og er því fullkomið til að grípa með í ferðalagið, í sumarbústaðinn eða bara til að spila saman við eldhúsborðið.
02
Vatnsbrúsi svartur
Þetta er hinn fullkomni brúsi til að halda vatninu þínu köldu og fersku yfir allan daginn. Hann smellpassar í skólatöskuna, er tilvalinn á æfinguna og frábær til að hafa með í bílnum eða heima við. Þægileg hönnun sem fellur vel í hönd og hjálpar þér að halda vökvajafnvæginu í lagi yfir daginn.
2 myndir
03
Púsl 1000 bita
Sumir segja að það komi varla jól án þess að púsla, þess vegna bjóðum við upp á krefjandi jólapúsl í ár fyrir alla fjölskylduna. Prófið að setja það við matarborðið, og allir í fjölskyldunni og gestir og gangandi mega taka þátt. Þetta púsl býður upp á klukkustundir af róandi hugleiðslu og samverustundir með börnunum okkar og unglingum. Raðið bitunum saman og sjáið jólapúslið í ár verða til.
3 myndir
04
IQ púsl
Skemmtileg og snjöll þraut sem reynir á rýmisgreind, rökhugsun og þolinmæði. Markmiðið er að raða litríkum, samtengdum kúlubitum í spilaborðið þannig að þeir passi allir fullkomlega saman í rammann.
Með fylgir bæklingur sem sýnir upphafsstöðu hverrar þrautar – svo er það í þínum höndum að finna út hvar bitarnir sem eftir eru eiga heima.
Þrautin er í fullkominni stærð til að kippa með hvert sem er, hvort sem það er út að borða, í matarboð eða ferðalag. Frábær skjálaus afþreying sem heldur huganum við efnið!
3 myndir
05
Endurskinsmerki til styrktar Bryndísarhlíðar
Okkur þykir ákaflega vænt um samstarfið okkar í ár við Bryndísarhlíð.
Bryndísarhlíð verður sérhæfð áfalla- og ofbeldismóttaka Landspítala - öruggur staður þar sem börn og ungmenni geta leitað sér aðstoðar. Móttakan opnar í febrúrar 2027.
Meira um Bryndísarhlíð á www.mbk.is
2 myndir
06
Svefngríma “Megi draumar þínir rætast”
Það er gott að sofa, og hvað þá með þessa silkimjúka svefngrímu með fallegu skilaboðunum: Megi draumar þínir rætast.
2 myndir
07
Blaðurskjóða spil
Ertu algjör blaðurskjóða, eða vefst þér tunga um tönn þegar á hólminn er komið og tíminn tifar?
Blaðurskjóða er frábær og fjörugt samveruspil, sem byggir á sömu vinsælu hugmynd og klassíski leikurinn Alias. Markmiðið er sáraeinfalt en ótrúlega skemmtilegt: Þú átt að fá liðsfélaga þína til að giska á eins mörg orð og mögulegt er áður en tíminn klárast. Þú mátt nota samheiti, andheiti, hljóð og skrautlegar lýsingar - en þú mátt alls ekki segja orðið sjálft!
Líka frábær leið til að auka orðaforða.
3 myndir
08
Demantaföndur
Jólaleg útgáfa af hinu sívinsæla demantaföndri. Föndrið þjálfar fínhreyfingar, einbeitingu og þolinmæði á meðan börnin njóta þess að skapa eitthvað fallegt.
Notalegt jólaföndur sem hentar vel í rólega desemberstund.
09
Þrautabók Jólaálfsins 4
Skemmtileg og fjölbreytt þrautabók fyrir unglinga! Bókin er stútfull af spennandi verkefnum og þrautum sem reyna á rökhugsun, einbeitingu og útsjónarsemi.
Krefjandi á köflum, en alltaf skemmtileg. Fullkomin afþreying fyrir rólegar stundir í desember og jólafríinu.
Stærð A4
3 myndir
10
Jólasokkar
Gæða jólasokkar sem ætti að hlýja allar fætur um jólin.
Krílapakkinn, stærð 25-28 (13 cm)
Leikskólapakkinn, stærð 29-32 (14,5 cm)
Grunnskólapakkinn, stærð 33-37 (15,5 cm)
Unglingapakkinn, stærð 37-42
Efni: 80% bómull, 12% nylon og 8% spandex
2 myndir
11
Auga fyrir auga
Hvað ef íslenska fortíðin væri miklu meira spennandi en þú hafðir ímyndað þér?
Auga fyrir auga er ný íslensk unglingabók sem flytur lesandann inn í hættulegan heim Sturlungaaldar – tíma valdabaráttu, hefnda og leyndarmála þar sem enginn veit hverjum er hægt að treysta.
Spennandi bók þar sem íslensk saga, þjóðsögur og ævintýri fléttast saman svo erfitt er að leggja bókina frá sér.
Höfundur: Álfrún Perla Baldursdóttir
2 myndir
12
Perlur unglingapakkinn
Perlurnar okkar hafa slegið í gegn síðustu ár, enda er fátt notalegra en að setjast niður og perla saman í desember. Perlugerð getur bæði verið dásamleg samverustund og frábær leið til að fá þau til að dunda sér ein. Fyrir unglingana völdum við jólastjörnur til að perla.
Úr perlunum verða fallegar jólaskreytingar sem hægt er að hengja á jólatréð, setja á jólapakka eða gefa einhverjum kærum. Skemmtileg jólahefð þar sem sköpunargleði og samvera fá að njóta sín.
2 myndir
13
Jólasokkur jólasveinn
Gerðu biðina eftir jólasveinunum enn skemmtilegri! Þessi fallegi jólasokkur er hannaður sérstaklega fyrir krakka til að lita og skreyta sjálf. Á honum eru skýrar og skemmtilegar útlínumyndir af sígildum jólapersónum.
Með hverjum sokk fylgir lítill pakki af tússpennum, svo hægt er að hefjast handa um leið. Skemmtileg og róleg afþreying þar sem útkoman verður einstakur og persónulegur jólasokkur. Tilbúinn í gluggann fyrir jólasveinana.
Viltu minnka jólastressið?
Allar skógjafirnar í einum kassa, tilbúnar fyrir desember.
Heildarvirði 35.000 kr.
kr.17,490Setja í körfu





























