- Ein pöntunEngin hlaup á bensínstöð í desember.
- Vandlega valiðNytsamlegt, ókynjað og við hæfi aldursins.
- KassinnMerktur „Bókhald” svo forvitnir láti hann vera.
Hvað er í pakkanum?
Hver gjöf er valin til þess að skapa samverustundir — bók eftir íslenska höfunda, föndur, spil og þroskaleikföng. *Hámark 5 pakkar á hvern viðskiptavin.
2 myndir
01
Tréþraut teningur
Skemmtileg þraut fyrir hugmyndaríka krakka þar sem reynir á rýmisgreind og rökhugsun. Þrautin snýst um að setja kubbana saman í kassa en það er líka hægt að leika sér að byggja úr kubbunum. Málmdósin fyrir kubbana er svo einstaklega paktísk og í fullkominni stærð til að kippa með sér í ferðalagið, í sumarbústaðinn, flugvélina eða einfaldlega til að hafa góða reglu á kubbunum heima við.
4 myndir
02
Ljónið á leikvanginum
Hvað gerir þú þegar óttinn lætur á sér kræla? Eins og ógnvekjandi ljón, sem mætir óboðið. Hættir þú við að gera það sem þú ætlar þér, eða finnur þú leið í gegn um óttann? Hákon ætlar að keppa í hástökki í fyrsta sinn, en lamandi kvíði verður til þess að hann flýr af hólmi. Með stuðningi og snjöllum ráðum eldri systur sinnar áttar Hákon sig á því að hann þarf ekki að losna við óttann til þess að vera hugrakkur. Þessi fallega barnabók hjálpar fjölskyldum að takast á við erfiðar tilfinningar og áhyggjur á uppbyggilegan hátt. Þetta er hagnýt saga sem sýnir börnum að raunverulegt hugrekki felst ekki í því að vera aldrei hræddur, heldur að láta óttann ekki stoppa sig. Sagan er sjálfstætt framhald metsölubókarinnar Skýin í maganum og er skrifuð í samstarfi við Sterkari út í lífið.
Höfundar: Sigrún Hrönn Ólafsdóttir og Svanborg María Guðmundsdóttir
03
Vatnsbrúsi grænn
Þetta er hinn fullkomni brúsi til að halda vatninu þínu köldu og fersku yfir allan daginn. Hann smellpassar í skólatöskuna, er tilvalinn á æfinguna og frábær til að hafa með í bílnum eða heima við. Þægileg hönnun sem fellur vel í hönd og hjálpar þér að halda vökvajafnvæginu í lagi yfir daginn.
2 myndir
04
Púsl 100 bita
Sumir segja að það komi varla jól án þess að púsla og við erum eiginlega sammála! Púslið okkar hentar grunnskólabörnum vel og er bæði skemmtileg afþreying og góð æfing í einbeitingu, þolinmæði og rýmisgreind.
Prófið að hafa púslið á matarborðinu eða sófaborðinu yfir jólin og leyfið allri fjölskyldunni og gestum og gangandi að taka þátt. Púsl er einföld leið til að skapa notalegar samverustundir, hægja aðeins á og njóta þess að vera saman í núinu.
3 myndir
05
IQ púsl
Skemmtileg og snjöll þraut sem reynir á rýmisgreind, rökhugsun og þolinmæði. Markmiðið er að raða litríkum, samtengdum kúlubitum í spilaborðið þannig að þeir passi allir fullkomlega saman í rammann.
Með fylgir bæklingur sem sýnir upphafsstöðu hverrar þrautar – svo er það í þínum höndum að finna út hvar bitarnir sem eftir eru eiga heima.
Þrautin er í fullkominni stærð til að kippa með hvert sem er, hvort sem það er út að borða, í matarboð eða ferðalag. Frábær skjálaus afþreying sem heldur huganum við efnið!
2 myndir
06
Jólasokkur hreindýr
Gerðu biðina eftir jólasveinunum enn skemmtilegri! Þessi fallegi jólasokkur er hannaður sérstaklega fyrir krakka til að lita og skreyta sjálf. Á honum eru skýrar og skemmtilegar útlínumyndir af sígildum jólapersónum.
Með hverjum sokk fylgir lítill pakki af tússpennum, svo hægt er að hefjast handa um leið. Skemmtileg og róleg afþreying þar sem útkoman verður einstakur og persónulegur jólasokkur. Tilbúinn í gluggann fyrir jólasveinana.
3 myndir
07
Endurskinsmerki til styrktar Bryndísarhlíðar
Okkur þykir ákaflega vænt um samstarfið okkar í ár við Bryndísarhlíð.
Bryndísarhlíð verður sérhæfð áfalla- og ofbeldismóttaka Landspítala - öruggur staður þar sem börn og ungmenni geta leitað sér aðstoðar. Móttakan opnar í febrúrar 2027.
Meira um Bryndísarhlíð á www.mbk.is
2 myndir
08
Perlur grunnskólapakkinn
Perlurnar okkar hafa slegið í gegn síðustu ár, enda er fátt notalegra en að setjast niður og perla saman í desember. Perlugerð getur bæði verið dásamleg samverustund og frábær leið til að fá þau til að dunda sér ein.
Úr perlunum verða fallegar jólaskreytingar sem hægt er að hengja á jólatréð, setja á jólapakka eða gefa einhverjum kærum. Skemmtileg jólahefð þar sem sköpunargleði og samvera fá að njóta sín.
2 myndir
09
Svefngríma “Megi draumar þínir rætast”
Það er gott að sofa, og hvað þá með þessa silkimjúka svefngrímu með fallegu skilaboðunum: Megi draumar þínir rætast.
2 myndir
10
Jólapakki spil
Bráðfyndinn og hraður spilaleikur fyrir alla fjölskylduna þar sem einbeiting, viðbragðsflýtir og snör handtök skipta öllu máli!
Leikmenn skiptast á að leggja niður spil og segja orðin pakki, snjókall, köttur, álfur, skraut. Þegar orðið og myndin passa saman þurfa allir að vera snöggir að slá á bunkann!
Einfaldur, fjörugur og fullkominn í jólaboðið. Í kassanum fylgja auðvitað ítarlegar leikleiðbeiningar.
Spilið er sérstaklega hannað fyrir jólin 2026 og hefur aldrei verið gefið út áður! Það er fátt sem toppar minningar um skemmtileg spilakvöld í jólafríinu. Spilin sem við höfum hannað undanfarin ár hafa heldur betur slegið í gegn og við erum sannfærð um að þetta muni gera það líka.
3 myndir
11
Demantaföndur
Jólaleg útgáfa af hinu sívinsæla demantaföndri. Föndrið þjálfar fínhreyfingar, einbeitingu og þolinmæði á meðan börnin njóta þess að skapa eitthvað fallegt.
Notalegt jólaföndur sem hentar vel í rólega desemberstund.
12
Þrautabók jólaálfsins 3
Skemmtileg og fjölbreytt þrautabók fyrir grunnskólakrakka! Bókin er stútfull af spennandi verkefnum og þrautum sem reyna á rökhugsun, einbeitingu og útsjónarsemi.
Krefjandi á köflum, en alltaf skemmtileg. Fullkomin afþreying fyrir rólegar stundir í desember og jólafríinu.
3 myndir
13
Jólasokkar
Gæða jólasokkar sem ætti að hlýja allar fætur um jólin.
Krílapakkinn, stærð 25-28 (13 cm)
Leikskólapakkinn, stærð 29-32 (14,5 cm)
Grunnskólapakkinn, stærð 33-37 (15,5 cm)
Unglingapakkinn, stærð 37-42
Efni: 80% bómull, 12% nylon og 8% spandex
Viltu minnka jólastressið?
Allar skógjafirnar í einum kassa, tilbúnar fyrir desember.
Heildarvirði 35.000 kr.
kr.17,490Setja í körfu






























