- Ein pöntunEngin hlaup á bensínstöð í desember.
- Vandlega valiðNytsamlegt, ókynjað og við hæfi aldursins.
- KassinnMerktur „Bókhald” svo forvitnir láti hann vera.
Hvað er í pakkanum?
Hver gjöf er valin fyrir yngstu börnin — öruggar, nytsamlegar og til þess gerðar að skapa samverustundir. *Hámark 5 pakkar á hvern viðskiptavin.
3 myndir
01
Nótt í fjósinu
Nótt í fjósinu er fallega skrifuð bók fyrir minnstu krílin okkar, þar sem börnin læra hljóð dýranna og hvar þau sofa í íslensku sveitinni.
Dýrin hafa ruglast á svefnstöðum sínum og koll af kolli þurfa þau að finna sinn rétta stað. En þegar einn svefnstað vantar þurfa dýrin að hjálpast að og finna lausn á málinu.
Höfundur: Svanborg María Guðmundsdóttir
Myndskreytingar: Desin Esa
3 myndir
02
Trékubbar
Klassískt og skemmtilegt byggingasett sem hvetur til skapandi leiks hjá börnum (og fullorðnum). Settið inniheldur viðarkubba í fjölbreyttum formum - kassa, sívalninga, boga og þríhyrninga - sem gera ungum byggingameisturum kleift að reisa hús, kastala og turna að vild. Kubbarnir eru í stílhreinum, dempuðum litum: svörtum, hvítum, gráum og náttúrulegum viðarlit.
Það sem gerir þetta sett sérstakt er hin praktíska málmdós. Hún er fullkomin stærð til að kippa með sér í ferðalagið, í sumarbústaðinn, flugvélina eða einfaldlega til að hafa góða reglu á kubbunum heima við.
Skemmtilegt þroskaleikfang sem reynir á fínhreyfingar, rýmisgreind og ímyndunarafl.
03
Vatnsbrúsi ljósblár
Þetta er hinn fullkomni brúsi til að halda vatninu þínu köldu og fersku yfir allan daginn. Hann smellpassar í skólatöskuna, er tilvalinn á æfinguna og frábær til að hafa með í bílnum eða heima við. Þægileg hönnun sem fellur vel í hönd og hjálpar þér að halda vökvajafnvæginu í lagi yfir daginn.
3 myndir
04
Segulpúsl
Allir fá púsl við sitt hæfi í ár, og sumir segja að það komi varla jól án þess að fá að púsla. Þetta sett inniheldur opnanlegt segulborð með fallegri landslagsmynd ásamt þykkum segulbitum í laginu eins og þekkt villidýr (gíraffi, ljón, fíll, krókódíll og fleiri). Þar sem bitarnir festast við bókina er þetta hið fullkomna ferðaleikfang í bílinn, flugvélina og matarboðið.
3 myndir
05
Regnboga viðarþraut
Einstaklega falleg bogadregin viðarþraut með hlýlegri og róandi náttúrumynd. Púslið er gert úr þykkum viðarbitum sem mynda saman sól, ský, regnboga, snævi þakið fjall og vötn. Bitarnir eru mjúkir viðkomu og þægilegir fyrir smáar hendur að grípa og raða. Þessi þraut er ekki aðeins skemmtilegt leikfang sem styrkir samhæfingu handa og augna hjá yngstu krílunum, heldur er það líka stílhreint og fallegt punt inni á barnaherbergi þegar það er ekki í notkun.
2 myndir
06
Jólasokkur snjókarl
Gerðu biðina eftir jólasveinunum enn skemmtilegri! Þessi fallegi jólasokkur er hannaður sérstaklega fyrir krakka til að lita og skreyta sjálf. Á honum eru skýrar og skemmtilegar útlínumyndir af sígildum jólapersónum.
Með hverjum sokk fylgir lítill pakki af tússpennum, svo hægt er að hefjast handa um leið. Skemmtileg og róleg afþreying þar sem útkoman verður einstakur og persónulegur jólasokkur. Tilbúinn í gluggann fyrir jólasveinana.
3 myndir
07
Endurskinsmerki til styrktar Bryndísarhlíðar
Okkur þykir ákaflega vænt um samstarfið okkar í ár við Bryndísarhlíð.
Bryndísarhlíð verður sérhæfð áfalla- og ofbeldismóttaka Landspítala - öruggur staður þar sem börn og ungmenni geta leitað sér aðstoðar. Móttakan opnar í febrúrar 2027.
Meira um Bryndísarhlíð á www.mbk.is
2 myndir
08
Íslenska stafrófið plakat
Yndislegt og fræðandi plakat með íslenska stafrófinu sem sómir sér fullkomlega á veggnum í barnaherberginu. Við hvern staf er falleg teikning af dýri sem byrjar á viðkomandi staf, sem gerir stafakennsluna bæði sjónræna og skemmtilega fyrir litla könnuði. Plakatið er hannað í mildum, fallegum litum sem tóna vel við hlýlegt umhverfi og skapa rólega en skapandi stemningu í herberginu.
Stærð A4
3 myndir
09
Tilfinninga- og þarfaspilin
Tilfinninga- og þarfaspilin eru hagnýtt og dýrmætt verkfæri sem er sérstaklega hannað til að efla tilfinningalæsi barna og hjálpa þeim að tjá sig, bæði í gleði og vanda. Þegar stórar tilfinningar gera vart við sig getur oft verið erfitt fyrir börn að finna réttu orðin eða svara spurningum. Í slíkum aðstæðum geta spilin hjálpað; í stað þess að finna fyrir pressu til að tala getur barnið einfaldlega fundið og rétt fram viðeigandi spil, eins og „Ég finn fyrir reiði“ eða „Ég þarf pásu“, til að láta vita af líðan sinni á skýran og sjónrænan hátt.
Orðalagið á spilunum styður við hugmyndafræði um að þú ert ekki tilfinningin heldur finnur þú fyrir henni, t.d. „Ég finn fyrir reiði“ í stað þess að segja „Ég er reiður“.
2 myndir
10
Þrautabók Jólaálfsins 1
Jólaleg lita- og þrautabók fyrir krílin okkar.
Stærð: A5
3 myndir
11
Jólasokkar
Gæða jólasokkar sem ætti að hlýja allar fætur um jólin.
Krílapakkinn, stærð 25-28 (13 cm)
Leikskólapakkinn, stærð 29-32 (14,5 cm)
Grunnskólapakkinn, stærð 33-37 (15,5 cm)
Unglingapakkinn, stærð 37-42
Efni: 80% bómull, 12% nylon og 8% spandex
12
Perlur krílapakkinn
Perlurnar okkar hafa slegið í gegn síðustu ár, enda er fátt notalegra en að setjast niður og perla saman í desember. Perlugerð getur bæði verið dásamleg samverustund og frábær leið til að fá þau til að dunda sér ein.
Úr perlunum verða fallegar jólaskreytingar sem hægt er að hengja á jólatréð, setja á jólapakka eða gefa einhverjum kærum. Skemmtileg jólahefð þar sem sköpunargleði og samvera fá að njóta sín.
4 myndir
13
Vatnslitabók
Vatnslitabók sem skreytir blaðsíðurnar á sinn einstaka hátt.
Viltu minnka jólastressið?
Allar skógjafirnar í einum kassa, tilbúnar fyrir desember.
Heildarvirði 35.000 kr.
kr.17,490Setja í körfu

































