- Ein pöntunEngin hlaup á bensínstöð í desember.
- Vandlega valiðNytsamlegt, ókynjað og við hæfi aldursins.
- KassinnMerktur „Bókhald” svo forvitnir láti hann vera.
Hvað er í pakkanum?
Hver gjöf er valin fyrir 1-3 ára aldur — bók, föndur, spil og þroskaleikföng sem skapa samverustundir. *Hámark 5 pakkar á hvern viðskiptavin.
2 myndir
01
Sóley og galdurinn að velja rétt
Hvað á Sóley að gera?
Skemmtileg og gagnvirk bók þar sem barnið fær að ráða ferðinni! Sóley lendir í ýmsum aðstæðum sem börn þekkja úr daglegu lífi og í gegnum bókina fær lesandinn að velja hvað Sóley gerir næst. Hvert val hefur áhrif á framhaldið og getur leitt söguna í mismunandi áttir.
Bókin hjálpar börnum á einfaldan og skemmtilegan hátt að átta sig á því að val okkar hefur áhrif - og að við höfum oft meira vald yfir deginum okkar en við höldum.
Bók sem má lesa aftur og aftur og velja nýja leið í hvert skipti.
Höfundur: Álfrún Perla Baldursdóttir
4 myndir
02
Stöflunarleikur úr viði
Skemmtilegur og krefjandi stöflunarleikur. Settið inniheldur viðarsívalninga í ýmsum stærðum og þykktum, málaða í líflegum appelsínugulum og blágrænum litum. Með fylgir sérstakur litateningur sem gerir kubbadótið að spennandi leik: Kastaðu teningnum og reyndu að stafla þeim lit sem kemur upp án þess að turninn hrynji!
Leikurinn kemur í lítilli, ferningslaga málmdós sem geymir alla hlutana á öruggum stað. Þetta gerir hann að fullkomnum afþreyingarkosti fyrir ferðalög, útilegur eða sumarbústaðaferðir.
Frábær leikur sem sameinar kynslóðir og eflir einbeitingu og jafnvægisskyn hjá börnum.
03
Vatnsbrúsi dökkblár
Þetta er hinn fullkomni brúsi til að halda vatninu þínu köldu og fersku yfir allan daginn. Hann smellpassar í skólatöskuna, er tilvalinn á æfinguna og frábær til að hafa með í bílnum eða heima við. Þægileg hönnun sem fellur vel í hönd og hjálpar þér að halda vökvajafnvæginu í lagi yfir daginn.
2 myndir
04
Viðarpúsl
Sumir segja að jólin komi varla án þess að allir fái að púsla smá, og hvað þá börnin okkar. Hér er á ferð skemmtilegt púsl, hannað úr viði, sem hentar vel börnum á leikskólaaldri. Myndin sýnir glaðlega dýravini, eins og björn, tígrisdýr og pöndu, á ævintýralegri göngu um skóginn. Frábært púsl sem þjálfar samhæfingu handa og augna.
2 myndir
05
Sexhyrningur þraut
Púslið samanstendur af viðarbitum í mismunandi litum (bláum, rauðum, grænum, appelsínugulum, gulum og ljósbláum) sem þarf að raða saman þannig að þeir passi inn í sexhyrnda rammann. Þetta er frábært og þroskandi leikfang til að þjálfa fínhreyfingar, litaþekkingu og rýmisgreind hjá leikskólabörnum.
2 myndir
06
Jólasokkur hreindýr
Gerðu biðina eftir jólasveinunum enn skemmtilegri! Þessi fallegi jólasokkur er hannaður sérstaklega fyrir krakka til að lita og skreyta sjálf. Á honum eru skýrar og skemmtilegar útlínumyndir af sígildum jólapersónum.
Með hverjum sokk fylgir lítill pakki af tússpennum, svo hægt er að hefjast handa um leið. Skemmtileg og róleg afþreying þar sem útkoman verður einstakur og persónulegur jólasokkur. Tilbúinn í gluggann fyrir jólasveinana.
3 myndir
07
Endurskinsmerki til styrktar Bryndísarhlíðar
Okkur þykir ákaflega vænt um samstarfið okkar í ár við Bryndísarhlíð.
Bryndísarhlíð verður sérhæfð áfalla- og ofbeldismóttaka Landspítala - öruggur staður þar sem börn og ungmenni geta leitað sér aðstoðar. Móttakan opnar í febrúrar 2027.
Meira um Bryndísarhlíð á www.mbk.is
2 myndir
08
Íslenska stafrófið plakat
Yndislegt og fræðandi plakat með íslenska stafrófinu sem sómir sér fullkomlega á veggnum í barnaherberginu. Við hvern staf er falleg teikning af dýri sem byrjar á viðkomandi staf, sem gerir stafakennsluna bæði sjónræna og skemmtilega fyrir litla könnuði. Plakatið er hannað í mildum, fallegum litum sem tóna vel við hlýlegt umhverfi og skapa rólega en skapandi stemningu í herberginu.
Stærð A4
2 myndir
09
Grýla spil
Hinn sígildi og skemmtilegi Svarti Pétur er komin í nýjan og ævintýralegan jólabúning! Í stað þess að forðast Svarta Pétur snýst leikurinn nú um að lenda ekki með Grýlu.
Markmiðið er einfalt og spennandi: Dragðu spil af næsta leikmanni, paraðu saman jólaleguarmyndirnar og losaðu þig þannig við spil. En passaðu þig, því Grýla leynist í stokknum! Sá leikmaður sem situr uppi með Grýlu þegar öll hin spilin hafa verið pöruð - tapar leiknum.
Einfalt, spennandi og bráðskemmtilegt spil fyrir alla fjölskylduna.
3 myndir
10
Demantaföndur
Jólaleg útgáfa af hinu sívinsæla demantaföndri. Föndrið þjálfar fínhreyfingar, einbeitingu og þolinmæði á meðan börnin njóta þess að skapa eitthvað fallegt.
Notalegt jólaföndur sem hentar vel í rólega desemberstund.
11
Þrautabók Jólaálfsins 2
Skemmtileg og fjölbreytt þrautabók fyrir eldri krakkana í leikskóla! Bókin er stútfull af fjölbreyttum þrautum, tölu- og stafaæfingum í bland við jólamyndir til að lita.
Krefjandi á köflum, en alltaf skemmtileg. Fullkomin afþreying fyrir rólegar stundir í desember og jólafríinu.
Stærð: A4
3 myndir
12
Jólasokkar
Gæða jólasokkar sem ætti að hlýja allar fætur um jólin.
Krílapakkinn, stærð 25-28 (13 cm)
Leikskólapakkinn, stærð 29-32 (14,5 cm)
Grunnskólapakkinn, stærð 33-37 (15,5 cm)
Unglingapakkinn, stærð 37-42
Efni: 80% bómull, 12% nylon og 8% spandex
2 myndir
13
Perlur leikskólapakkinn
Perlurnar okkar hafa slegið í gegn síðustu ár, enda er fátt notalegra en að setjast niður og perla saman í desember. Perlugerð getur bæði verið dásamleg samverustund og frábær leið til að fá þau til að dunda sér ein.
Úr perlunum verða fallegar jólaskreytingar sem hægt er að hengja á jólatréð, setja á jólapakka eða gefa einhverjum kærum. Skemmtileg jólahefð þar sem sköpunargleði og samvera fá að njóta sín.
Viltu minnka jólastressið?
Allar skógjafirnar í einum kassa, tilbúnar fyrir desember.
Heildarvirði 35.000 kr.
kr.17,490Setja í körfu





























