Tilfinninga- og þarfaspilin eru hagnýtt og dýrmætt verkfæri sem er sérstaklega hannað til að efla tilfinningalæsi barna og hjálpa þeim að tjá sig, bæði í gleði og vanda. Þegar stórar tilfinningar gera vart við sig getur oft verið erfitt fyrir börn að finna réttu orðin eða svara spurningum. Í slíkum aðstæðum geta spilin hjálpað; í stað þess að finna fyrir pressu til að tala getur barnið einfaldlega fundið og rétt fram viðeigandi spil, eins og „Ég finn fyrir reiði“ eða „Ég þarf pásu“, til að láta vita af líðan sinni á skýran og sjónrænan hátt.
Orðalagið á spilunum styður við hugmyndafræði um að þú ert ekki tilfinningin heldur finnur þú fyrir henni, t.d. „Ég finn fyrir reiði“ í stað þess að segja „Ég er reiður“.








Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.