Bráðfyndinn og hraður spilaleikur fyrir alla fjölskylduna þar sem einbeiting, viðbragðsflýtir og snör handtök skipta öllu máli!
Leikmenn skiptast á að leggja niður spil og segja orðin pakki, snjókall, köttur, álfur, skraut. Þegar orðið og myndin passa saman þurfa allir að vera snöggir að slá á bunkann!
Einfaldur, fjörugur og fullkominn í jólaboðið. Í kassanum fylgja auðvitað ítarlegar leikleiðbeiningar.
Spilið er sérstaklega hannað fyrir jólin 2026 og hefur aldrei verið gefið út áður! Það er fátt sem toppar minningar um skemmtileg spilakvöld í jólafríinu. Spilin sem við höfum hannað undanfarin ár hafa heldur betur slegið í gegn og við erum sannfærð um að þetta muni gera það líka.







Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.