Einstaklega falleg bogadregin viðarþraut með hlýlegri og róandi náttúrumynd. Púslið er gert úr þykkum viðarbitum sem mynda saman sól, ský, regnboga, snævi þakið fjall og vötn. Bitarnir eru mjúkir viðkomu og þægilegir fyrir smáar hendur að grípa og raða. Þessi þraut er ekki aðeins skemmtilegt leikfang sem styrkir samhæfingu handa og augna hjá yngstu krílunum, heldur er það líka stílhreint og fallegt punt inni á barnaherbergi þegar það er ekki í notkun.








Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.