Klassískt og skemmtilegt byggingasett sem hvetur til skapandi leiks hjá börnum (og fullorðnum). Settið inniheldur viðarkubba í fjölbreyttum formum – kassa, sívalninga, boga og þríhyrninga – sem gera ungum byggingameisturum kleift að reisa hús, kastala og turna að vild. Kubbarnir eru í stílhreinum, dempuðum litum: svörtum, hvítum, gráum og náttúrulegum viðarlit.
Það sem gerir þetta sett sérstakt er hin praktíska málmdós. Hún er fullkomin stærð til að kippa með sér í ferðalagið, í sumarbústaðinn, flugvélina eða einfaldlega til að hafa góða reglu á kubbunum heima við.
Skemmtilegt þroskaleikfang sem reynir á fínhreyfingar, rýmisgreind og ímyndunarafl.








Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.